Þriðja vinnustofa European Language Resource Coordination (ELRC) á Íslandi
Hvenær: | 8. Desember 2022 |
Hvar: | Stapi, st. 210, Háskóla Íslands |
Stofnun: |
The European Language Resource Coordination (ELRC) consortium Þýðingasetur Háskóla Íslands |
Máltæknin mótar margtyngda framtíð. Hún hefur þegar breytt því hvernig við notum tækin okkar, eigum í samskiptum, kaupum inn í búðum og ferðumst. Hún endurmótar stöðugt hvernig við nýtum okkur þjónustu, bæði á vegum fyrirtækja og hins opinbera. Forrit sem leiðrétta sjálfkrafa stafsetningarvillur og aðstoða við að skrifa áferðarfallegan texta, stafrænn hjálparbúnaður í farsímum sem breytir töluðu máli í ritað, vélmenni sem svara þegar við hringjum í bankann eða opinberar stofnanir, kerfi sem þýða sjálfvirkt úr erlendu tungumáli og margt annað; allt eykur þetta möguleikana í okkar daglega lífi, fyrirtækjarekstri og stjórnsýslu. En getum við fyllilega notað okkar eigið tungumál í stafrænum samskiptum? Fær tungumálið nægan stuðning og hefur það getuna til að halda í við tækniframfarir á gervigreindaröld?
Þriðja vinnustofa European Language Resource Coordination (ELRC) mun fjalla um þessi mál og hvetja til frjórrar umræðu um stöðu og framtíðarhorfur íslenskrar máltækni. Þróunaraðilar, hugbúnaðarfyrirtæki og notendur máltækni, bæði úr einkageiranum og opinbera geiranum, deila reynslu sinni, ræða hvaða kröfur þarf að uppfylla og hvaða leiðir eru færar til að umbreyta stafrænum samskiptum í margtyngdri Evrópu, með því að nýta sér máltæknina. Að lokum verður rætt hvernig málleg gögn texta og tals geta ýtt undir þróun gervigreindar.
ELRC-vinnustofan er ókeypis viðburður, en skráningar er krafist. Vinsamlegast skráðu þig hér.
Hafðu samband við skipuleggjanda vinnustofunnar á Íslandi ef þú vilt fá frekari upplýsingar:
Gauti Kristmannsson
Prófessor í Háskóla Íslands
gautikri@hi.is
Dagskrá vinnustofu
09:30 - 10:00 | Registration |
10:00 - 10:15 | Gestir boðnir velkomnir og kynning |
10:15 - 10:35 |
Sjálfvirkt þýðingarkerfi og þjónusta CEF Vilmantas Liubinas, Directorate-General for Translation, European Commission |
10:35 - 11:05 |
Sameiginlegt evrópskt tungumálasvæði fyrir gögn Monica PRETTI, Data Directorate, Directorate-General for Communications Networks, Content and Technology, European Commission |
11:05 - 11:30 |
Kynning á Almannarómi Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir |
11:30 - 11:50 | Kaffihlé |
11:50 - 12:30 |
Möguleikar máltækni og gervigreindar - hvar við erum stödd, og hvert við ættum að stefna - Máltækni á Íslandi Pallborðsumræða: Vilhjálmur Þorsteinsson Hafsteinn Einarsson Helga Ingimundardóttir |
12:30 - 13:10 |
Máltækni fyrir opinbera geirann Kári Örlygsson Steinþór Steingrímsson Þórunn Arnardóttir |
13:10 - 13:50 | Hádegishlé og umræður |
13:50 - 14:10 |
Kynning á Principle Gauti Kristmannsson |
14:10 - 14:30 |
NLTP-verkefnið Bjarni Barkarson |
14:30 - 14:40 | Samantekt og lokaorð |